Lífið

Hrefna Rósa Sætran perlar eins og enginn sé morgundagurinn

Margrét Hugrún Gústavsdóttir skrifar
Hrefna Rósa og Björn eru skapandi hjón með meiru. Hér hafa þau skipt um andlit, svona eins og hjón gera.
Hrefna Rósa og Björn eru skapandi hjón með meiru. Hér hafa þau skipt um andlit, svona eins og hjón gera. Hrefna Rósa Sætran / Facebook
Hrefna Rósa Sætran, kennd við Grillmarkaðinn, er gífurlega hæfileikarík kona hvort sem er við matargerð eða þegar kemur að ...perli.

Hrefna birti geysilega flotta mynd á Facebook af nýjasta áhugamáli fjölskyldunnar, nefnilega perli.

Á myndinni má sjá nokkra karaktera úr Star Wars, Hello Kitty, hauskúpu og Spiderman svo eitthvað sé nefnt en Hrefna segir þau sífellt reyna að koma perlinu upp á hærra plan.

„Þegar við sjáum eitthvað sem okkur finnst flott eru fyrstu viðbrögðin oftar en ekki hvort það sé hægt að perla það," segir Hrefna og skellir upp úr.





Áhugamálið fór fyrir alvöru af stað þegar tuttugu mánaða dóttir þeirra Björns Árnasonar ljósmyndara, fékk perl græjur í jólagjöf en að sögn móðurinnar endist barnið ekki jafn lengi og foreldrarnir við iðjuna, sem gjarna er stunduð á leikskólum og af eldri borgurum.

„Stelpan okkar segir bara HELLO KITTY og svo perlum við Hello Kitty handa henni. Nú er þetta hinsvegar búið að þróast þannig að við bíðum spennt eftir að börnin okkar fari að sofa svo að við getum perlað meira," segir Hrefna og bætir við: „Þetta er bara alveg komið í staðinn fyrir sjónvarpið."

Spurð að því hvort perlið sé bara fríhendis eða hvort þetta sé fyrirfram planað með uppdrætti og skissum segir Hefna að þau geri bæði:

„Við finnum myndir á netinu og pixlum þær svo til í tölvunni þannig að við fáum á þær svona kassaform sem hægt er að perla, svo perlum við stundum bara fríhendis."

Og metnaðurinn færist mjög í aukana: „Nú síðast vorum við að pæla í að perla Mónu Lísu!"






Fleiri fréttir

Sjá meira


×