Lífið

Sjónvarpsstjarna lést: Varð fyrir lest í tökum á myndbandi

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Greg Plitt var 37 ára þegar hann lést.
Greg Plitt var 37 ára þegar hann lést. Vísir/Getty
Leikarinn, fitness-stjarnan og stjarnan úr raunveruleikaþáttum, Greg Plitt, lést við tökur á myndbandi um helgina. Plitt varð fyrir lest. Hann var að vinna að tökum að myndbandi, líklega heilsuræktarmyndbandi, þegar hann lést.

Að sögn lögreglunnar í Los Angeles stóð hann á miðjum teinunum þegar hann varð fyrir lestinni.

Að sögn fjölmiðla í Bandaríkjunum fóru tökurnar fram á bannsvæði og voru þeir sem stýrðu upptökum ekki með tilskilin leyfi. Myndbönd úr öryggisvélum eru nú til skoðunnar hjá lögreglumönnum.

Plitt var þekktur fyrir þátttöku sína í raunveruleikaþáttunum Work Out sem voru á dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar Bravo. Hann var einnig í þáttunum Friends to Lovers, sem eiga enn eftir að fara á dagskrá.

Plitt lék í nokkrum kvikmyndum. Hann lék í myndinni Watchmen og einnig í Terminator Salvation, en atriðin sem hann lék í voru klippt úr þeirri mynd og sást hann því ekki á skjánum.

Plitt var 37 ára þegar hann lést. Í gærkvöldi hittust aðdáendur hans í Los Angeles og minntust hans.

Plitt var í góðu formi, eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×