Lífið

Er Ronaldo kominn með nýja kærustu? Þvílík fegurð

Margrét H. Gústavsdóttir skrifar
Visir/Getty Images
Talið er að knattspyrnuhetjan Cristiano Ronaldo sé komin með nýja kærustu, spænsku sjónvarpskonuna Lucia Villalon.

Ronaldo, sem er 29 ára, hætti með fyrirsætunni Irinu Shayk um jólin en opinber yfirlýsing barst frá kappanum í dag þar sem hann staðfesti þetta. 

Nú vilja menn meina að hann sé byrjaður með spænsku fegurðardísinni eftir að þau sáust samana á verðlaunahátíð FIFA í Zurich þar sem Ronaldo tók við verðlaunum sem leikmaður árins.

Hvorki Ronaldo, né hin gullfallega Lucia sem er menntuð bæði í lög -og fjölmiðlafræðum, hafa viljað tjá sig um sambandið eða útskýra fyrir áhugasömu fjölmiðlafólki hvers eðlis vinátta þeirra er.

Af hjónasvipnum má þó álykta að það hljóti eitthvað að vera að gerast á milli þeirra enda sykursæt, bæði tvö.



Í síðustu viku kom fram að skilnaður Irinu og Ronaldos hafi sprottið af því að hún neitaði að koma í sextusafmæli sem knattspyrnuhetjan hélt fyrir mömmu sína.

Talsmaður fyrirsæturnnar neitar þessu og segir hana hafa verið í mjög góðum tengslum við fjölskyldu Ronaldos.

Parið var saman í um fimm ár en menn fóru að draga framtíð þess í efa þegar hann sást með Luciu á FIFA og minntist ekki orði á Irinu í þakkarræðu sinni.

 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×