Hackett heimsótti allsherjargoðann Freyr Bjarnason skrifar 20. janúar 2015 09:00 Hilmar Örn Hilmarsson og Steve Hackett hittust um síðustu helgi. „
Það er oft sem maður verður fyrir sárum vonbrigðum þegar maður hittir gamlar hetjur en það átti ekki við þarna,“ segir Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjargoði og tónlistarmaður. Steve Hackett, sem spilaði með Todmobile á tvennum tónleikum um síðustu helgi, nýtti tækifærið og heimsótti Hilmar Örn er hann var staddur hér á landi. Hackett er fyrrverandi gítarleikari bresku hljómsveitarinnar Genesis, sem var vígð inn í Frægðarhöll rokksins árið 2010. „Hann og Jo, konan hans, eru mikið áhugafólk um andleg málefni. Fyrsta sólóplatan hans var einmitt byggð á tarot-spilunum, þannig að þau hafa gert sér far um að skoða helga staði hingað og þangað um heiminn. Maður getur kallað þetta andlega túrista,“ segir Hilmar Örn, sem hafði mjög gaman af heimsókninni. „Þetta er ákaflega skemmtilegt og vel upplýst fólk. Þau skoðuðu teikningar af hofinu og svo fórum við út að borða og ræddum heima og geima,“ segir hann og á við hof ásatrúarmanna. Stefnan er á að bygging þess hefjist í febrúar eða mars í Öskjuhlíð, rétt fyrir austan Nauthól. Spurður út í trúarbrögð Hacketts og konu hans segir Hilmar Örn að Jo sé vel að sér í heiðinni grískri trú á meðan Hackett hefur lengi verið áhugamaður um vestræna trúarmenningu. „Fyrsta sólóplatan hans tekur tarot-spilin og táknfræði þeirra fyrir. Ég var einmitt að hlusta á plötu hjá honum sem er að koma út núna í mars sem er öll byggð upp í kringum forn trúar- og iðkunarkerfi,“ segir hann. Hilmar Örn hefur lengi verið mikill aðdáandi gítarleikarans. Í byrjun níunda áratugarins þegar Hilmar var að vinna að útgáfu hljómsveitarinnar Þeys í Bretlandi hitti hann hljómborðsleikara sem starfaði með Hackett. „Þá var hann hættur í Genesis og var að byrja með sitt sólódæmi. Ég varð ágætis kunningi hans [hljómborðsleikarans], þannig að ég hef alltaf fylgst með honum leynt og ljóst.“ Plant var stórhrifinn af blótinu Að sögn Hilmars Arnar hafa erlendar popp- og rokkstjörnur sem hafa haldið tónleika á Íslandi heimsótt hann af og til. „Ég er með gamalt tengslanet frá því ég var að vinna í Bretlandi þannig að maður tengist ansi mörgum. Í gegnum árum hafa menn gjarnan leitað mig uppi. Robert Plant kom á blót hjá okkur á sumardaginn fyrsta [árið 2005] og var stórhrifinn. Hann hefur tekið þetta mjög alvarlega eins og Led Zeppelin III [þriðja plata Led Zeppelin] sýnir. Hann hefur sökkt sér í Tolkien og keltneska goðafræði og er meðlimur í fjölmörgum sögufélögum í Wales þar sem hann býr. Þar skarast líka vinahópur. Hann hefur unnið með fólki sem ég hef unnið með."
Mest lesið Liam Payne úr One Direction látinn Lífið Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Lífið Man ekki eftir öðru eins: Aldrei séð jafn marga falla í yfirlið yfir einni mynd Bíó og sjónvarp „Ekki þurrt auga í salnum“ Lífið Páll Óskar kveikti í kofanum Lífið Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Lífið Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Lífið „Lífsstíllinn er að drepa okkur“ Lífið Sungu bakraddir fyrir Heru og eru nú byrjuð saman Lífið Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé Tíska og hönnun Fleiri fréttir Liam Payne úr One Direction látinn Páll Óskar kveikti í kofanum Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Kveiktu í dansgólfinu í Iðnó „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ „Ekki þurrt auga í salnum“ Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Orðið það sama og þekkt fataverslun í miðbæ Reykjavíkur Hlutverkið það erfiðasta hingað til Glamúr og glæsileiki í opnun hjá Lovísu DIMMA var flott en einhæf Almenningur um stjórnarslit: „Þetta var komið út í smá rugl“ Sjarmerandi íbúð listafólks í miðbænum Pískur sem þróaðist í hættulegustu samsæriskenningu síðari tíma Sungu bakraddir fyrir Heru og eru nú byrjuð saman Fylgdist með Pétri Jóhanni byggja útieldhús Dóttir Ingós og Alexöndru komin með nafn „Lífsstíllinn er að drepa okkur“ Stjörnulífið: Kóngar, drottningar og stjörnur í útlöndum Ótrúleg tilviljun er Stefán brenndi fánann Hvað eru plötusnúðarnir að hlusta á? „Ég nenni ekkert að hafa eitthvað að sanna“ „Leiðangurinn verður kvennaleiðangur að öllu leyti“ Krakkatían: Óveður, flugvélar og kirkjur Hlaupa Bleiku slaufuna í sólarhring Mary drottning hafi undrast umræðu um brúna skó Björns Sjá meira