Lífið

Clooney keypti draugahús

Uri geller segir að leikarinn eigi eftir að sjá draug stúlkunnar.
Uri geller segir að leikarinn eigi eftir að sjá draug stúlkunnar.
Talið er að Hollywood-leikarinn George Clooney og eiginkona hans, Amal, hafi fest kaup á húsi í enska þorpinu Sonning.

Væntanlegur nágranni þeirra, sjónhverfingamaðurinn og miðillinn Uri Geller, segir í viðtali við Daily Express að draugagangur sé á svæðinu.

„Það er hægt að sjá húsið hans frá Sonning-brúnni og ég hef séð skrítna hluti gerast á þessari brú. Draugur lítillar stúlku gengur yfir hana. Ég efast ekki um að George Clooney eigi eftir að sjá hana. Þetta er besta húsið í hverfinu til að sjá þennan draug.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×