Tónlist

Rapparinn Eminem með fjölbreyttasta orðaforðann

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Rapparinn er með fjölbreyttasta orðaforða mest seldu listamanna allra tíma.
Rapparinn er með fjölbreyttasta orðaforða mest seldu listamanna allra tíma. Vísir/Getty
Rannsókn hefur verið gerð á orðaforða tónlistarmanna sem eiga mest seldu lög allra tíma. Í ljós kom að flestir þeirra tónlistarmanna sem hafa fjölbreyttasta orðaforðann eru rapparar. Þeir sem eru með minnstan orðaforða eru tónlistarmenn á borð við Bítlana, Mariah Carey og The Who.

Rannsóknin var framkvæmd þannig að tekin voru 100 mest seldu lög frá 93 mest seldu tónlistarmönnum allra tíma. Þá var orðafjöldi hvers lags borinn saman og tekið mið af hversu oft sömu orðin komu. Það ætti ekki að koma á óvart að hipphopptónlistarmenn hafi trónað á toppnum en sá sem að á langfjölbreyttasta orðaforðann er Eminem. Aðrir tónlistarmenn á toppi listans voru meðal annars Jay-Z, Tupac Shakur, Kanye West og Bob Dylan sem tekur einnig vinninginn fyrir að nota oftast ný orð, eða að meðaltali á níu orða fresti.

Tónlistarsíðan Musixmatch sem sá um rannsóknina segir að fjölbreyttur orðaforði geri ekki endilega tónlistina betri en að áhugavert sé að sjá hipphopptónlistarmennina eiga toppinn á listanum.

Michael Jackson, Katy Perry og Neil Diamond eru undir meðallagi í orðaforða en Celine Dion og Prince ná að halda sig ofarlega á listanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.