Lífið

Segir að sér hafi verið byrlað ólyfjan í hlustunarpartý hjá Justin Bieber

Stefán Árni Pálsson skrifar
Justin Bieber flottur í Fjaðrárgljúfri í vikunni.
Justin Bieber flottur í Fjaðrárgljúfri í vikunni. vísir
Eins og flestir tóku eftir var Justin Bieber á Íslandi í síðustu viku. Eftir dvöl sína á landinu fór poppstjarnan til Ástralíu til að taka upp nýja plötu.

Konan sem stödd var í partýi í hljóðveri með kappanum segir að sér hafi verið byrlað ólyfjan en þetta kemur fram í slúðurmiðlinum TMZ .

Fyrirsætan Bailey Scarlett segir á samskiptamiðli að henni hafi verið boðið í hljóðver í Melbourne og þar fengið sér glas af vodka og límonaði. Hún segist hafa lagt drykkinn frá sér og farið að spjalla við aðrar stelpur á svæðinu.

Stuttu síðar hafi henni byrjað að líða einkennilega. Hana fór að svima og sjá óskýrt og segist því næst hafa farið að gráta.

Konan segir að Justin Bieber hafi sjálfur sest niður með henni og reynt að róa hana niður.

Jimi Wyatt, eigandi hljóðversins segist hafa skoðað efni úr eftirlitsmyndavélum staðarins og að enginn hafi komið nálægt glasi Scarlett allt kvöldið.

Rætt var um málið í Morgunþættinum á FM957 í morgun. 


Tengdar fréttir

Bieber á nærbuxunum í Fjaðrárgljúfri

Justin Bieber er heldur betur ennþá á landinu en hann birti rétt í þessu fallega mynd af sér á Calvin Klein nærbuxunum einum í Fjaðrárgljúfri við Kirkjubæjarklaustur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.