Heilsa

Rakel Eva hvetur fólk áfram: „Það eru algjör lífsgæði að geta staðið upp úr rúminu“

Elísabet Margeirsdóttir skrifar
Elísabet og Rakel EvaVísir/Egill Aðalsteinsson
Mörgum finnst tilhugsunin um að vakna eldsnemma á dimmum og köldum morgnum til að fara út að hreyfa sig ekki mjög spennandi. Það á svo sannarlega ekki við Rakel Evu Sævarsdóttur og æfingahópinn Áform sem hún stofnaði síðasta sumar. Ég prófaði æfingu með hópnum í vikunni og skemmti mér konunglega, en hún var einföld, skemmtileg og fyrir fólk í öllu mögulegu formi.

„Það eru allir velkomnir, æfingarnar henta öllum og eru fyrir alla. Sama í hvaða formi þú ert, hvort sem þú ert sófakartafla og vilt snúa við blaðinu eða íþróttamaður í toppformi. Allir eru mættir til að hreyfa sig, taka vel á því, ná árangri, ýta sér út fyrir þægindarammann og síðast en ekki síst að hitta vini síni og njóta þess að svitna saman,“ segir Rakel.

Vísir/Rakel Eva
Það má segja að Áform eigi rætur sínar að rekja til Boston í Bandaríkjunum en þar bjó Rakel um tíma og kynntist November Project hreyfingunni í ágúst árið 2013. „í stuttu máli byrjuðu tveir félagar í nóvember árið 2011 að hvetja hvorn annan til að halda sér í formi yfir háveturinn sér að kostnaðarlausu. Eftir að þeir fóru að auglýsa æfingarnar sínar á samfélagsmiðlum hefur þetta vaxið gríðarlega og má finna hreyfinguna í 19 borgum um Bandaríkin og eru um samtals 3000 manns sem mæta reglulega á æfingar á vegum November Project.

Rakel náði ótrúlegum árangri og þakkar góðri hvatningu frá vinum og ókunnugu fólki á æfingum.  „Þessi frábæra tilfinning eftir góða æfingu togaði mann á lappir á morgnana og að vita að brosandi fólk beið mín, meira að segja þegar frostið fór niður í 15-20 stig yfir veturinn.“

Hvað segir Rakel við fólk sem kýs að sofa lengur en hefði gott af því að mæta?

„Ef þú vilt koma þér í form eru engar afsakanir gildar. Það eru algjör lífsgæði að geta staðið upp úr rúmini, klætt sig í hlaupagallann, reimað á sig skóna og farið út. Af hverju að nýta ekki þessi lífsgæði ef þau eru fyrir hendi?“

Áform hittist alla miðvikudagsmorgna við aðalbyggingu Háskóla Íslands og á föstudagsmorgnum við Hallgrímskirkju. Æfingar byrja á slaginu hálf sjö og er tekið á því í 40 mínútur. Allir eru velkomnir og það kostar ekkert.

Áform á Facebook og Instagram


Tengdar fréttir

"Við þurfum fleira fólk út að hjóla"

Sesselja Traustadóttir hjá Hjólafærni lífgar upp á hjólamenningu landsins og gefur okkur ráð. Hlaupasumarið byrjaði með trompi á sumardaginn fyrsta með Víðavangshlaupi ÍR og Vormaraþoninu í Elliðaárdalnum.

Ókeypis hreyfing fyrir alla

Tvo morgna í viku má sjá sístækkandi hóp fólks stunda fjölbreyttar æfingar víðsvegar um borginna. Forsprakki framtaksins hér á landi er Rakel Eva Sævarsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.