Tónlist

Sveitin er sérvalin af meðlimum Queen

Hljómsveitin gefur þeirri alvöru ekkert eftir.
Hljómsveitin gefur þeirri alvöru ekkert eftir. Vísir
„Þeir segja um söngvarann að hann hljóti að vera afkvæmi Freddie Mercury, röddin hans er alveg fáránleg og þú heyrir næstum engan mun á þeim,“ segir Guðbjartur Finnbjörnsson tónleikahaldari.

Hingað til lands er á leiðinni stærsta Queen tribute-hljómsveit allra tíma, Queen Extravaganza, sem er samsett af Queen-meðlimunum þeim Roger Taylor og Brian May.

Hljómsveitin er afrakstur netkeppni sem efnt var til fyrir rúmu ári. Guðbjartur segir þá Taylor og May hafa spilað með bandinu nokkrum sinnum, meðal annars í American Idol, og útilokar því ekki að þeir félagar gætu komið með.

„Ég mun reyna að fá þá hingað, og hver veit nema þeir hugsi með sér að það væri upplagt að kíkja til Íslands og spila í ágúst. En ég ætla ekki að lofa neinu,“ segir Guðbjartur.

Hann segir miklar kröfur hafa verið gerðar varðandi hljóðkerfi fyrir tónleikana og þurfti að fara vel yfir slík atriði áður en samningar gengu í gegn. Á hljómleikunum verða líka sýndar sjaldgæfar kvikmyndir úr safni Queen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×