Lífið

Hadid-systur sitja fyrir á forsíðumynd

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Systurnar birtast í fyrsta sinn saman á forsíðu.
Systurnar birtast í fyrsta sinn saman á forsíðu. Vísir/Getty
Systurnar Gigi og Bella Hadid prýða forsíðu tímaritsins V Magazine.

Þetta er í fyrsta skipti sem þær birtast saman á forsíðu en þær hafa áður verið myndaðar saman í myndaþætti fyrir tímaritið Love.

Systurnar voru myndaðar af ljósmyndaranum fræga, Steven Klein, en hann hefur myndað fræga, allt frá Kim Kardashian til Brads Pitt.

Á myndunum eru systurnar klæddar í undirföt og loðfeld með stuttar hárkollur, sem þykir djarft miðað við að þær eru aðeins 20 og 18 ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×