Menning

Jón Kalman og Þorsteinn tilnefndir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jón Kalman Stefánsson
Jón Kalman Stefánsson Vísir/Daníel
Jón Kalman Stefánsson og Þorsteinn frá Hamri hafa verið tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Jón Kalman í flokki skáldsagna fyrir bók sína Fiskanir hafa enga fætur og Þorsteinn í flokki ljóðabóka fyrir Skessukatla.

Dómnefnd bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, sem skipuð er fulltrúum frá öllum norrænu löndunum, tilkynnti í dag hvaða bækur hljóta tilnefningar til verðlaunanna í ár. Lista yfir tilnefningar frá hverju landi fyrir sig má sjá hér að neðan.

Dómnefnd bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs útnefnir verðlaunahafann og tilkynnt verður um úrslit við hátíðlega athöfn í Reykjavík þann 27. október. Í verðlaun eru 350 þúsund danskar krónur.

Danmörk

Pia Juul: Avuncular. Onkelagtige tekster

Ljóðabók, Tiderne Skifter, 2014

Helle Helle: Hvis det er

Skáldsaga, Samleren, 2014

Samíska tungumálasvæðið

Niillas Holmberg: amas amas amasmuvvat

Ljóðabók, DAT, 2013

Finnland

Peter Sandström:Transparente Blanche

Skáldsaga, Schildts & Söderströms, 2014

Hannu Raittila: Terminaali

Skáldsaga, Siltala, 2013

Færeyjar

Sólrún Michelsen: Hinumegin er mars

Skáldsaga, Mentunargrunnur Studentafelagsins, 2013

Grænland

Niviaq Korneliussen: HOMO sapienne

Skáldsaga, Milik, 2014

Þorsteinn frá Hamri.Vísir/Valli
Ísland

Jón Kalman Stefánsson: Fiskarnir hafa enga fætur

Skáldsaga, Bjartur, 2013

Þorsteinn frá Hamri: Skessukatlar

Ljóðabók, Mál og menning, 2013

Noregur

Kristine Næss: Bare et menneske

Skáldsaga, Oktober, 2014

Jon Fosse: Trilogien: Andvake. Olavs draumar. Kveldsvævd

Skáldsaga, Samlaget, 2014

Svíþjóð

Therese Bohman: Den andra kvinnan

Skáldsaga, Norstedts, 2014

Bruno K. Öijer: Och natten viskade Annabel Lee

Ljóðabók, Wahlström & Widstrand, 2014

Álandseyjar

Karin Erlandsson: Minkriket

Skáldsaga, Schildts & Söderströms, 2014






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.