Skoðun

Hagnýtt nám í hjúkrunarfræði

Abigail Jean Róbertsdóttir skrifar
Fyrir fjórum árum tók ég ákvörðun um að skrá mig í háskólanám. Námsleiðirnar í boði voru margvíslegar en fyrir mig var ekki margt sem kom til greina þar sem ég átti mér þann draum að verða hjúkrunarfræðingur. Í raun vissi ég ekki hvað ég væri að fara út í en í dag sé ég ekki eftir þessari ákvörðun. Hjúkrunarfræði er fag sem mér þykir ofboðslega vænt um og eru þetta dýrmæt námsár sem ég á að baki og hef ég lært ofboðslega margt.

Áður en námið hófst gerði ég mér ekki fulla grein fyrir því í hverju starf hjúkrunarfræðinga fólst og ekki fyrir þeirri miklu ábyrgð sem fylgir starfinu. Ég gleymi aldrei fyrstu vöktunum sem ég tók í verknámi á Landspítalanum. Ég upplifði margar blendnar tilfinningar í senn; hræðslu, spenning, gleði og sorg. Ég fylgdist með hjúkrunarfræðingum á þeytingi að sinna mörgum bráðveikum sjúklingum. Þeir fylgdust með hverjum og einum sjúklingi sem þeir báru ábyrgð á og var brugðist við breytingum á einkennum á fljótan og öruggan hátt. Einnig var nóg af öðrum verkefnum; lyfjagjafir, sáraskiptingar, blóðprufur, fræðsla fyrir rannsóknir og svo mætti lengi telja. Eftir verknámið sá ég hvað starf hjúkrunarfræðinga er fjölbreytt, spennandi og gefandi og var ég harðákveðin í að halda áfram í þessu námi!

Að takast á við veikindi, hvort sem þau eru skammvinn eða langvinn, er krefjandi þar sem andlegt álag, streita og áhyggjur láta á sér kræla. Í náminu hef ég lært ótrúlega margt en það sem stendur upp úr eru þau forréttindi að fá að taka þátt í lífi fólks á þeirra erfiðustu stundum. Að veita öxl til að gráta á, að gefa sjúklingum tækifæri til að tala og ræða sínar áhyggjur og bæta líðan þeirra er ótrúlega dýrmætt. Ég veit að ég og margir aðrir hjúkrunarfræðinemar eru sammála um að nám í hjúkrunarfræði sé krefjandi og þroskandi en einnig mjög skemmtilegt og fjölbreytt!

Hjúkrunarfræði er ótrúlega spennandi fag sem býður upp á marga möguleika. Námið leggur áherslu á fagmennsku, samhyggð, umhyggju, þekkingu, færni, og nærveru. Þrátt fyrir að neikvæð umræða sé til staðar í samfélaginu varðandi heilbrigðisskerfið, þá sé ég ekki eftir því að hafa valið þessa leið. Mér finnst starfið mitt skemmtilegt og enginn dagur er eins, þar sem markmiðið er ávallt það sama; að tryggja öryggi, bæta heilsu og líðan fólks og aðstoða ýmist á erfiðum stundum eða gleðilegum.

Að þessu framansögðu óska ég þess að kjarabarátta hjúkrunarfræðinga leysist farsællega sem fyrst og að menntun okkar verði metin til launa. 

Abigail Jean Róbertsdóttir, 4.árs hjúkrunarfræðinemi frá Háskóla Íslands.




Skoðun

Sjá meira


×