Lífið

Gestir Secret Solstice ósáttir við að tímataflan sé ekki aðgengileg á netinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá Secret Solstice-hátíðinni í fyrra.
Frá Secret Solstice-hátíðinni í fyrra. vísir/stefán
Tónlistarhátíðin Secret Solstice hefst á morgun og stendur alla helgina í Laugardalnum. Gestir hátíðarinnar hafa beðið óþreyjufullir eftir tímatöflunni, það er klukkan hvað hvaða tónlistarmenn koma fram, og hefur tímataflan nú verið sett upp á Prikinu.

Mynd af tímatöflunni var deilt á Facebook-síðu Secret Solstice og á Twitter-aðgangi hátíðarinnar með orðunum:

“Secret Solstice 2015 set times are up at Prikið in Reykjavík right now! The only place in Iceland before the festival you can see set times...”

Á íslensku myndi þetta útleggjast sem svo: „Tímataflan fyrir Secret Solstice er komin upp á Prikinu! Eini staðurinn á Íslandi þar sem þú getur séð tímasetningarnar fyrir hátíðina...“

Í kommentum við bæði færsluna á Facebook sem og á Twitter lýsir fólk yfir megnri óánægju sinni með þetta og spyr hvort ekki sé hægt að nálgast tímatöfluna á netinu; það sé nú einu sinni árið 2015.

Klukkutíma eftir að umrædd færsla birtist svo á Facebook var sett inn mynd af tímatöflunni og þá jafnframt tilkynnt að hægt yrði að kaupa hana á 200 krónur á morgun. Nokkrir hátíðargestir hafa kommentað við myndina og segjast ekki geta lesið almennilega á tímatöfluna. Þá kalla þeir eftir því að kort af svæðinu verði jafnframt sett á netið.

Ósk Gunnarsdóttir, kynningarfulltrúi Secret Solstice, segir í samtali við Vísi að tímataflan komi í fyrramálið á netið í betri upplausn og fari þá meðal annars á heimasíðu hátíðarinnar. Verið sé að vinna í málinu og ætti hún því að vera öllum aðgengileg áður en hátíðin byrjar á hádegi á morgun.

Secret Solstice 2015 set times are up at Prikið in Reykjavík right now! The only place in Iceland before the festival you can see set times...

Posted by Secret Solstice Festival on Thursday, 18 June 2015

TIMED LINEUP! Check out artist timings here, or grab a physical program on site tomorrow for only 200kr! See you tomorrow from 12:00...

Posted by Secret Solstice Festival on Thursday, 18 June 2015

Tengdar fréttir

Svamla í bjórglasi á Secret Solstice

Gestum tónlistarhátíðarinnar gefst færi á að marinera í heitum potti með útsýni yfir aðalsviðið meðan á hátíðinni stendur.

Hver verður leynigesturinn á Secret Solstice?

Gísli Pálmi spilar sama kvöld og verður með nýjungar á sviðinu. Hann neitar að gefa upp hvaða rappgoðsögn sé á leið til landsins. En staðfestir að þetta sé "legend".

Er þetta Rihanna í Laugardalnum?

"Selfie“ af manni með konu, sem virðist vera söngkonan Rihanna, baksviðs á Secret Solstice hátíðinni gengur nú á meðal fólks um netheima.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×