Lífið

Fjölmargir giskuðu á rétt lag

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Í gær spurðum við á Vísi lesendur okkar hvaða lag Rúnar Freyr væri að túlka með dansi sínum. Þetta myndskeið birtist á sínum tíma í Spurningabombunni, sem er á dagskrá Stöðvar 2. 

Eins og heyra má hér að ofan var lagið Gordjöss með Páli Óskari og Memfismafíunni.

Leikarinn Rúnar Freyr fer iðulega á kostum í dansleik sínum í Spurningabombunni á Stöð 2. Þá sýnir leikarinn einskonar látbragðsdans sem er vísun í texta á þekktum íslenskum dægurlögum.

Nú styttist í að Spurningabomban komi aftur á dagskrá Stöðvar 2. Logi Bergmann stýrir þáttunum. Næsti þáttur verður sýndur þann 30. janúar næstkomandi.


Tengdar fréttir

Getur þú giskað á lagið?

Leikarinn Rúnar Freyr fer iðulega á kostum í dansleik sínum í Spurningabombunni á Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×