Lífið

Eminem heimsótti ungling á dánarbeðinu

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Eminem og Gage Garmo.
Eminem og Gage Garmo.
Rapparinn Eminem heimsótti hinn sautján ára Gage Garmo sem var illa haldinn af krabbameini. Þremur dögum eftir heimsókn Eminem lést unglingurinn.

Heimsókn rapparans kom til vegna átaks vina og fjölskyldu Gage sem biðluðu til Eminem að koma í heimsókn í gegnum Twitter. Þeir merktu innlegg sín með umræðumerkinu #GetGageGarmoToMeetEminem og tóku margir þátt. Þeir náðu til Eminem og ákvað hann að fljúga frá Atlanta til Michigan um helgina. Hann heimsótti Gage á sunnudaginn.

Þetta var hinsta ósk Gage Garmo, enda mikill aðdáandi Eminem. Þeir félagarnir áttu, að sögn erlendra miðla, gott spjall í um klukkustund. Eminem hefur ekkert viljað tjá sig um málið.

Gage lést í gær, aðeins sautján ára gamall. Hann hefði orðið átján ára á föstudaginn. Hann þjáðist af sjaldgæfu beinkrabbameini.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×