Menning

Ungir einleikarar á svið með Sinfóníunni

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Baldvin, Erna Vala, Lilja María og Steiney eru efnilegt tónlistarfólk á leið inn í heim atvinnumennskunnar.
Baldvin, Erna Vala, Lilja María og Steiney eru efnilegt tónlistarfólk á leið inn í heim atvinnumennskunnar.
„Þetta eru afskaplega frambærilegir músikantar,“ segir Hjördís Ástráðsdóttir, fræðslustjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, um einleikarana fjóra sem koma fram með hljómsveitinni á tónleikum hennar á fimmtudaginn klukkan 19.30.

Þeir eru Baldvin Oddsson trompet, Erna Vala Arnardóttir píanó, Lilja María Ásmundsdóttir píanó og Steiney Sigurðardóttir selló.

Þau sigruðu öll í keppni á fyrsta háskólastigi sem Sinfónían og Listaháskólinn efndu til og er árviss viðburður. Norski hljómsveitarstjórinn Torodd Wigum stjórnar hljómsveitinni í fyrsta sinn.

Einn af einleikurunum er við nám í Bandaríkjunum, það er Baldvin, hann var fimmtán ára þegar hann fór út til að stunda sitt sérnám og bara fimm ára þegar hann hóf trompetnám, að sögn Hjördísar.

Erna Vala og Lilja María á píanóunum eru frá sama kennara við Listaháskólann, honum Peter Maté, og sellóistinn Steiney er úr Tónlistarskólanum í Reykjavík. Þau eru öll í kringum tvítugt. Hjördís segir þau yndisleg ungmenni og ekki bara á einu sviði. „Sumu fólki er skenkt svo ríflega,“ segir hún og bætir við:

„Þau rituðu öll textann sinn í efnisskrána, tónlistarfólk þarf að kunna að skila svo mörgu af sér fyrir utan tónlistina.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×