Lífið

Nýjungar á Listasafninu

Adda Soffia Ingvarsdottir skrifar
Myndlistarkonan Jóna Hlíf Halldórsdóttir heldur fyrsta fyrirlesturinn.
Myndlistarkonan Jóna Hlíf Halldórsdóttir heldur fyrsta fyrirlesturinn. Vísir
Listasafnið á Akureyri heilsar nýja árinu með stæl og býður það velkomið með nýju merki, heimasíðu og glæsilegri dagskrá. Ein af nýjungunum á dagskránni eru þriðjudagsfyrirlestrar sem haldnir verða í vetur.

Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn í dag, 13. janúar, klukkan 17. Fyrirlestrarnir fara fram í Ketilhúsinu, sem nú er orðið hluti af listasafninu og einn af sýningarsölum þess, og er listasafnið þá með tvo sýningarsali, Ketilhúsið og í sjálfri listasafnsbyggingunni.

Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Á meðal fyrirlesara í vetur verða þau Hildur Friðriksdóttir, Eiríkur Stephenson og Hjörleifur Hjartarson (Hundur í óskilum), Margeir Dire Sigurðsson, Guðmundur Heiðar Frímannsson, Katrín Erna Gunnarsdóttir, María Rut Dýrfjörð og Jón Páll Eyjólfsson.

Myndlistarkonan Jóna Hlíf Halldórsdóttir mun halda fyrsta fyrirlesturinn undir yfirskriftinni Kjarni. „Ég mun fjalla um minn feril ásamt því að tala um hagsmunamál myndlistarmanna og hvað er í gangi í þeim málum, þar sem ég er formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna,“ segir Jóna.

Hún útskrifaðist frá Fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri 2005 og lauk MFA-gráðu frá Glasgow School of Art í Skotlandi 2007. Árið 2012 útskrifaðist hún með MA í listkennslu frá Listaháskóla Íslands.

„Meðal verka minna sem ég mun fjalla um er textaverkið Talk sem ég vann með safnstjóranum Hlyni Hallssyni fyrir Listahátíð 2012. Ég hef alltaf unnið mikið með texta og samtalið við áhorfandann, þá aðallega samtalið milli verksins og áhorfandans. Að auki fjalla ég um verkið Animus sem sýnt var í 002 Galleríi, þar sem ég fékk sex listakonur til að loka sig inni í tíu fermetra rými í sólarhring,“ segir Jóna. Aðgangur á fyrirlesturinn er ókeypis og eru allir velkomnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×