Lífið

Rappstjarnan Macklemore deilir gleðifréttum á einstakan hátt

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá parið gleðjast mjög.
Hér má sjá parið gleðjast mjög.
Rapparinn Ben Macklemore og unnusta hans Tricia Davis eru að verða foreldrar.

Þetta tilkynntu þau heimsbyggðinni á nýstárlegan hátt um helgina. „Fjölmiðlar hafa velt því fyrir sér hvort við séum að verða foreldrar. Við ákváðum því bara að segja ykkur fréttirnar sjálf,“ sagði parið í yfirlýsingu sem fylgdi með myndbandi af þeim í heimsókn á sjúkrastofnun. Í myndbandinu má meðal annars heyra hjartsláttinn í barninu, þegar Tricia fer í sónarskoðun.

Myndbandið endar svo með þeim upplýsingum að búist sé við barninu í maí næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×