Varar við fæðubótarefni Arnolds Schwarzenegger Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. júlí 2015 20:41 Matvælastofnun er ekki kunnugt um að efnið hafi verið flutt hingað til lands en varar engu að síður við Arnold Iron Dream. mynd/matvælastofnun
Matvælastofnun varar við fæðubótarefninu Arnold Iron Dream en varan er ólögleg hér á landi. Fæðubótarefnið hefur verið innkallað í 28 löndum í Evrópu þar sem efnið dínítrófenól fannst í vörunni við reglubundið eftirlit í Bretlandi. Notkun þess efnis í fæðubótarefni er óheimil. „Dínítrófenól er hættulegt neytendum og þarf ekki nema lítið magn af efninu til að eituráhrif komi fram. Það hefur valdið alvarlegum aukaverkunum og dauðsföll hafa verið rakin til neyslu efnisins,“ segir í tilkynningu Matvælastofnunar. Þar kemur jafnframt fram að stofnunin hafi ekki upplýsingar um að Arnold Iron Dream hafi verið flutt til landsins en engu að síður sé ekki hægt að útiloka að einhverjir hafi keypt fæðubótarefnið í gegnum erlendar vefsíður eða eitthvað slíkt. „Fæðubótarefnið Arnold Iron Dream hefur áður komið til kasta Matvælastofnunar. Stofnuninni barst tilkynning um vöruna í tengslum við fyrirhugaðan innflutning árið 2013 í samræmi við ákvæði um tilkynningarskyldu í reglugerð um fæðubótarefni. Í tilkynningarferlinu var innflytjanda bent á að óheimilt væri að flytja vöruna inn til landsins og/eða dreifa henni þar sem hún innihélt efni sem skilgreint er sem lyf hérlendis. Hér var um annað innihaldsefni en DNP að ræða. Efnið dínítrófenól er ekki tilgreint í innihaldslýsingu Arnold Iron Dream en í ljósi þess að efnið hefur greinst í vörunni varar Matvælastofnun við neyslu á öllum vörum undir þessu vöruheiti.“
Mest lesið Útkallið reyndist vera tóm vitleysa Innlent „Orðlaus af reiði“ yfir óboðlegu leikskólahúsnæði í Ármúla Innlent Ekki fallist á að dyrabjallan sé að fylgjast með nágrannanum Innlent „Öfga vinstri brjálæðingur“ og „Lygna-Kamala“ Erlent Lögreglumaður traðkaði á höfði manns Erlent Fundu lík fimm Ísraelsmanna í Khan Younis Erlent Ósáttur með hótelið, golfvellina og matinn en fær ekkert endurgreitt Innlent Loftefni hrundi í húsi sem fæst ekki uppkeypt Innlent „Hvað ertu að gera í þessum karlrembuflokki?“ Innlent Fjórtán ára stúlka myrt í Svíþjóð og jafnaldrar hennar í haldi Erlent Fleiri fréttir Tveir fluttir á bráðamóttöku eftir árekstur á Miklubraut Ósáttur með hótelið, golfvellina og matinn en fær ekkert endurgreitt „Þurfum að grípa inn í ekki seinna en strax“ Þjórsárdalur heillar og synt í Gjánni Aftengja sig Pírataspjallinu Eldur í gaskút á Egilsgötu Ekki fallist á að dyrabjallan sé að fylgjast með nágrannanum Ekki á því að yfirgefa Grindavík endanlega Milljarðs tap Play og götulist í Hafnarfirði Kviknaði í bíl í miðborginni Myndlistaskólinn yfirgefur JL-húsið Pósturinn varar við netþrjótum Færa varðturninn í nýjustu sundlaug Reykjavíkur Dagbjört dæmd í tíu ára fangelsi fyrir líkamsárás „Orðlaus af reiði“ yfir óboðlegu leikskólahúsnæði í Ármúla „Það er svolítill vælukjóatónn í honum“ Rýna ekki frekar í þyrlubjörgun við Fljótavík Útkallið reyndist vera tóm vitleysa Einar býður Sunnu í kaffi og vill ræða áburð um karlrembu Margt sem kann að skýra fjölgun tilkynninga til barnaverndar Hættustig í Grindavík og veiklulegur Biden „Hvað ertu að gera í þessum karlrembuflokki?“ Meðalævilengd Íslendinga styttist Sluppu furðuvel frá heimsókn hesta á golfvöllinn Segir Menntamálastofnun ekki hafa ráðið við stafræn samræmd próf Ágreiningur um kött og hótanir gegn börnum Fyrirvari fyrir næsta gos gæti verið nokkrar mínútur Kona grunuð um að verða sex ára syni sínum að bana sögð sakhæf „Okkur þykir mjög miður að þetta hafi gerst“ Öllu gríni fylgi alvara Sjá meira