Lífið

Fimm frægar sem átu fylgjuna sína eftir fæðingu

Margrét Hugrún skrifar
Vísir.is/Getty
Vísir.is/Getty
Hvað skyldu stjörnurnar í Hollywood gera þessa dagana til að léttast, sofa betur, vera betri á geði og framleiða meiri brjóstamjólk...svo fátt eitt sé nefnt.

Nú myndu kannski einhverjir giska á chiafræ, kókosvatn, lucuma, macca eða ristilskolun en þetta var allt í "hittifyrra".

Heitasta trendið meðal nýbakaðra mæðra í Hollywood er að borða fylgju. Sína eigin fylgju, hráa, þurrkaða, í töfluformi eða smoothie og helst gefa karlinum með sér!

Kim Zolciak

Skvísan úr raunveruleikaþáttunum The Real Housewifes of Atlanta gerði ekki bara smoothie úr fylgjunni sinniheldur krafðist hún þess að eiginmaðurinn, Kroy Biermann gerði slíkt hið sama.

Réttara sagt, eða orðrétt, sagði hin nýbakaða móðir: "You are drinking the f*&%ing smoothie, Kroy."

Kourtney Kardashian

Þrátt fyrir kjarkaðar yfirlýsingar var það ekki stóra systrin Kim sem át fylgjuna sína heldur Kourtney þegar barn númer 3 kom í heiminn. Stjarnan, sem lét framleiða töflur úr fylgjunni, segir að neysla þeirra hafi hreinlega breytt lífi sínu!

Holly Madison

Playboy kanínan krúttlega átti sitt fyrsta barn, dótturina Rainbow, árið 2013. Hún bloggaði um fylgjupælingar sínar á meðgöngunni og skrifaði: „Þetta hljómar kannski ógeðslega en ég ætla algjörlega að láta gera töflur úr fylgjunni minni eftir að Rainbow fæðist."

Alicia Silverstone

Alicia Silverstone sem heillaði marga úr skónum með leik sínum í hinni eftirminnilegu mynd Clueless át fylgjuna sína í töfluformi eftir að sonurinn, Bear Blue, kom í heiminn árið 2011.

Pillurnar höfðu slík áhrif að eiginmaðurinn, Christopher Jarecki, kallaði þær gleðipillur, eða -"happy pills".

January Jones

Hún er ekki bara með spes nafn sjálf, hún hefur líka sérstakan smekk á nöfnum.

Leikkonan með skemmtilega mánaðarnafnið, sem flestir kannast við sem Betty Draper úr Mad Men, sver við líf sitt að fylgjutöflurnar hafi gefið henni næga orku til að takast á við hlutverk sitt sem móður en sonur hennar, Xander Dane, fæddist í hittifyrra. January hefur aldrei gefið upp hver faðir barnsins er svo það má teljast harla ólíklegt að hann hafi fengið fylgju að smakka líka. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×