Lífið

Gwyneth Paltrow: Er ekki með komplexa yfir sambandi Chris Martin og Jennifer Lawrence

Margrét Hugrún skrifar
Gwyneth er alveg sama þó þau Chris og Jennifer séu saman.
Gwyneth er alveg sama þó þau Chris og Jennifer séu saman.
Þrátt fyrir orðróminn heldur Gwyneth Paltrow því fram að samband barnsföður hennar við leikkonuna Jennifer Lawrence sé ekkert að trufla hana.

Eins og flestum sem fylgjast með fréttum úr glysborginni er kunnugt byrjuðu þau Chris Martin úr Coldplay, og Hungergames stjarnan Jennifer Lawrence að sjást saman síðasta sumar eftir að þau Chris og Gwyneth skildu að skiptum.

Saman eiga þau Gwyneth (42) og Chris (37) tvö börn. Apple sem er tíu ára og Moses sem er átta ára.

Í viðtali við útvarpsmanninn Howard Stern furðaði Gwyneth sig á þessu slúðri:

„Af hverju ætti ég að hafa eitthvað á móti því að Chris sé með henni. Hann myndi aldrei vilja vera með konu sem væri ekki æðisleg."

Gwyneth er 42 ára en Jennifer er 24, tæpum tuttugu árum yngri. 

„Ég ber virðingu fyrir honum. Hann er faðir barnanna minna en þetta er hans líf, hans ákvörðun," sagði Gwyneth við Stern.

„Hún hlýtur að vera góð manneskja fyrst hann vill vera með henni. Ef ég kemst að einhverju öðru þá skal ég koma í annað viðtal og láta þig vita."

Á sama tíma sagði Gwyneth að sér væri sama þó Chris færi á deit með Rihönnu „Af því hún er svo svöl" eða jafnvel Lindsay Lohan sem er þekktur vandræðapési.

„Fólk á alltaf séns. Það tekur til í lífi sínu."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.