Hann er nú að gefa út tónlist í fyrsta sinn í átta ár og var farinn að missa trúna. „Ég var alveg búinn að missa trúna á mér sem tónlistarmaður, maður var alltaf að dæma þetta svo harkalega í hausnum á sér. Ég fór svo að hugsa að ég gæti ekki gert listaverkunum mínum þetta og tók upp lagerinn af lögunum aftur og valdi þrettán lög og sendi til útgáfunnar,“ útskýrir Birgir. Umrædd útgáfa er útgáfufyrirtækið Believe Digital, sem dreifir meðal annars tónlist listamanna á borð við Ásgeir Trausta og Björk stafrænt.
„Ég gef þetta út sjálfur og geri í raun allt sjálfur. Ég fæ aukahljóðfæraleikara og söngvara með mér. Annars hef ég ekki gert neinn samning, sem er mikill léttir fyrir mig, því þá er enginn milliliður og ég get komið henni að hvar sem er. Believe Digital aðstoðar mig bara við að koma tónlistinni inn á hinar helstu tónlistarveitur.“ Platan er tekin upp í London, Reykjavík og Kaupmannahöfn.
Tvö smáskífulög hafa komið út af plötunni, lagið Abstrakt! sem flutt er af Heimi Björnssyni rappara úr Skyttunum og Bandalag dauðra dúfna sem er sungið af Kolbrúnu Magneu Kristjánsdóttur. Annað lagið er hipphopp-lag blandað indie-rokki og í hinu er argentínskum tangó blandað við indie-rokk.
10 short stories kemur út á vínyl í haust en Birgir hefur misst alla trú á geisladisknum og ætlar ekki að gefa út á slíku formi. „Geisladiskurinn er kannski ekki dáinn á Íslandi en eins og þetta virkar í Evrópu og Bandaríkjunum þá er fólk hætt að kaupa geisladiska. Fólk kaupir frekar vínyl með download-kóða. Vínyllinn er orðinn sterkur aftur. Ég hugsa að geisladiskurinn verið dauður eftir tvö ár. Ég hef ekki keypt mér geisladisk í svona fjögur eða fimm ár en kaupi mér nokkrar vínylplötur í hverjum mánuði,“ segir Birgir. Hann stefnir á að halda útgáfutónleika í haust.
Birgir býr í Kaupmannahöfn en er um þessar mundir staddur á landinu og ætlar að spila með hljómsveitinni sinni Maus víða um land um verslunarmannahelgina, á Innipúkanum í Reykjavík í kvöld, Þjóðhátíð í Eyjum annað kvöld og á Græna hattinum á Akureyri á sunnudag. „Það er mikil tilhlökkun í bandinu. Maus hefur til dæmis aldrei spilað á Þjóðhátíð áður. Það er þvílíkur heiður að fá að spila á undan flugeldasýningunni,“ segir Birgir, sem lofar bara slögurum á tónleikum Maus um helgina.