Skoðun

Lækkum byggingarkostnað og bætum kjör

Almar Guðmundsson skrifar

Það er fátt rætt meira á Íslandi þessi misserin en erfiðleikar yngra og efnaminna fólks við að eignast eða leigja húsnæði við hæfi.

Samtök iðnaðarins hafa lagt í umtalsverða vinnu við að greina byggingarkostnað með það fyrir augum að leggja til haldbærar tillögur til að lækka byggingarkostnað og auka framboð á smærri íbúðum.

Tillögur SI eru tvíþættar. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir lækkun opinberra gjalda og skilvirkari stjórnsýslu gagnvart byggingaraðilum. Í öðru lagi eru lagðar til breytingar á byggingarreglugerð til einföldunar og aukinnar skilvirkni. Þessi atriði vega samanlagt meira en 30% af byggingarkostnaði.

Lóðagjöld samsvara nú um 20% af byggingarkostnaði. Lækkun þeirra er því mikilvægur liður í heildarmyndinni. Aðrir liðir eru smærri en hafa engu að síður mikil áhrif. Um er að ræða kostnað sem SI telja ýmist of háan eða óþarfan enda hafa einstaka kostnaðarliðir hækkað umtalsvert síðastliðin ár, langt umfram það sem telja má eðlilegar verðlagsbreytingar.

Að auki vilja SI benda á að gjaldskrár sveitarfélaga, kröfur í deiliskipulagi af ýmsum toga og fleiri atriði mynda ranga hvata þannig að byggingaraðilar byggja frekar stærri einingar en minni.

Tillögur SI til breytinga á byggingarreglugerð eru margþættar og miða að því að einfalda byggingu fasteigna og auka skilvirkni. Byggingarreglugerðin ætti að grunni til að vera markmiðasett, þ.e. gefa hönnuðum og framkvæmdaaðilum aukið svigrúm til lausna, en ekki vera forskrifuð, eins og hún er í dag. Umtalsverða breytingu þarf á bæði tilgangi reglugerðarinnar og inntaki. Í því liggja mikil tækifæri til lækkunar byggingarkostnaðar.

Miðað við útreikninga SI má ætla að framangreindar breytingar geti leitt til lækkunar byggingarkostnaðar að meðaltali um 4-6 milljónir króna á hverja íbúð af stærðinni 80-120m². Samtökin trúa því staðfastlega að í þessu felist besta leiðin fyrir stjórnvöld til að hafa marktæk almenn áhrif á að stórir hópar í samfélaginu hafi ráð á að eignast eigin íbúð eða leigja.

Það er fagnaðarefni að umhverfis- og auðlindaráðherra og ýmsir aðrir aðilar í stjórnmálum og stjórnsýslu hafa sýnt tillögum okkar mikinn áhuga. Verkefnið er mikilvægt og varðar stóra hópa samfélagsins. Það eru kjarabætur í húfi. Því er brýnt að hefjast handa strax.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×