Lífið

Missti 25 kíló á einu ári: "Mér fannst allt orðið svolítið erfitt“

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Brynjar var gestur Íslands í dag í gærkvöldi.
Brynjar var gestur Íslands í dag í gærkvöldi.
Brynja Ólafsdóttir hefur misst 25 kíló á einu ári. Hún ákvað að skrá sig á námskeið fyrir konur sem vildu léttast og sér ekki eftir því í dag. Brynja var gestur í þættinum Ísland í dag sem var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi og þar sagði hún frá ástæðunni á bakvið hinn breytta lífsstíl:

„Mér fannst allt orðið svolítið erfitt,“ sagði hún og vísaði til þess að hefðbundnar gjörðir í amstri hversdagsins voru orðnar nokkuð erfiðar. Átakið fór Brynja ekki í vegna útlitsins, heldur vegna heilsunnar. Hún segist vilja vera góð fyrirmynd fyrir börnin sín og vilji lifa heilbrigðum lífstíl.

Brynja sagði frá því í þættinum að fyrstu tvær vikurnar hefðu verið erfiðar, en síðan hafi róðurinn lést töluvert. Hún segist hafa breytt matarræðinu og aukið hreyfinguna. Nú hreyfi hún sig daglega, en fari í ræktina þrisvar í viku.

Hér að neðan má sjá Brynju í Íslandi í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×