Innlent

Magnús Ragnarsson lætur af störfum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/valli
Magnús Ragnarsson er hættur sem formaður Þjóðleikhúsráðs, og verður nýr formaður skipaður á næstu dögum. Starfi sínu gat hann ekki sinnt af persónulegum ástæðum, að því er fram kemur á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra skipaði Magnús formann Þjóðleikhúsráðs fyrir rúmum mánuði síðan, eða í lok nóvember í fyrra. Skipunin var til 14.september 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×