Lífið

Slim Jimmy í Rae Sremmurd fótbrotnaði á tónleikum

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Bræðurnir í Rae Sremmurd
Bræðurnir í Rae Sremmurd Vísir/Getty
Slim Jimmy, annar rapparinn í dúóinu Rae Sremmurd, fótbrotnaði eftir tónleika sveitarinnar á tónleikahátíðinni Governor‘s Ball í Bandaríkjunum. Flutningur rapparanna var á föstudaginn en þeir eru þekktir fyrir að allt annað en að standa í stað á tónleikum sínum. Til stendur að þeir komi til Íslands 27. ágúst en spurning er hvort að fall Slim Jimmy setji strik í reikninginn.

Slim Jimmy var að hoppa af sviðinu á hátalara en rann af honum og lenti á milli sviðsins og hátalarans. Aðdáaendur hafa sagt á Twitter að sviðið hafi verið blautt eftir rigningu dagsins. Swae Lee, hinn hluti Rae Sremmurd, kláraði flutninginn á meðan öryggisverðir aðstoðuðu Slim Jimmy.

Hér að neðan má sjá myndband af atvikinu. Tónleikahátíðin sendi frá sér yfirlýsingu varðandi öryggi listamanna á hátíðinni í kjölfar atburðarins. Aðstandendur segjast taka öryggi listamanna sinna mjög alvarlega.

Jimmy var fluttur á spítala í New York og er í stöðugu ástandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.