Innlent

Vilja undanþágu frá Seðlabanka

Jón Hákon Halldórsson skrifar
LBI Sótt hefur verið um heimild til að greiða út hátt í 126 milljarða.
LBI Sótt hefur verið um heimild til að greiða út hátt í 126 milljarða. fréttablaðið/Trausti
Þann 26. maí síðastliðinn sendi slitastjórn LBI hf. beiðni til Seðlabanka Íslands um undanþágu frá gjaldeyrishöftum til að greiða viðurkenndar forgangskröfur að jafnvirði um 123,5 milljarða króna miðað við gengi þann daginn. Upphæðin samsvarar öllum handbærum gjaldeyri LBI.

Sex dögum áður var endanlega staðfestur fyrir dómi í Skotlandi samningur slitastjórnar LBI og skiptastjóra Heritable Bank um lausn ágreiningsmála um kröfur og gagnkröfur milli aðilanna.

Samkvæmt því fékk LBI viðurkennda almenna kröfu að fjárhæð 70 milljónir punda og eftirstæða kröfu að fjárhæð 7 milljónir punda. LBI hf. hefur þegar fengið greiddar 65,8 milljónir punda upp í hinar samþykktu kröfur. Tekið er mið af greiðslunni, sem barst LBI á öðrum ársfjórðungi, í áætluðum endurheimtum LBI vegna Heritable Bank í fjárhagsupplýsingum fyrsta ársfjórðungs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×