Handbolti

Sveinn Aron áfram á Hlíðarenda

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sveinn Aron Sveinsson.
Sveinn Aron Sveinsson. vísir/Stefán
Sveinn Aron Sveinsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við handknattleiksdeild Vals.

Sveinn, sem er 22 ára, skoraði 48 mörk í 22 deildarleikjum fyrir Val í vetur en Valsmenn féllu úr leik fyrir Haukum í undanúrslitum Olís-deildarinnar.

Sveinn, sem leikur í hægra horninu, hefur alls leikið 73 deildarleiki fyrir Val og skorað í þeim 203 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×