Lífið

Greta í kjölfar Kidman

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Greta Salóme hefur í nógu að snúast um þessar mundir.
Greta Salóme hefur í nógu að snúast um þessar mundir. vísir/valli
„Ég var í spjalli strax á eftir Nicole Kidman,“ segir tónlistarkonan Greta Salóme. Hún var í viðtali í The Everyday Show á FOX31 í Denver í gær og kom strax á eftir áströlsku leikkonunni.

Greta er með tónleika í Denver í kvöld. „Ég er að spila með bandarískum gítarleikara, Aaron Walker. Ég mun spila mitt efni og svo spilum við djass saman með hljómsveitinni hans,“ segir Greta. Tónleikarnir fara fram í stórri gamalli kirkju, sem er oft notuð sem tónleikastaður.

Á morgun fer Greta til Orlando til þess að undirbúa nýjan stóran samning við Disney en hún gat ekki tjáð sig meira um þann samning að svo stöddu.

„Ég fer svo aftur á Disneyskipið og verð með tónleika þar frá miðjum janúar fram í mars.“ Þá kemur hún heim í þrjár vikur og ætlar hún að nýta þann tíma til þess að vinna í nýrri plötu sem hún vinnur með Daða Birgissyni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×