
Öll sýknuð í SPRON-málinu

Fimmmenningarnir, þau Guðmundur Hauksson, Rannveig Rist, Jóhann Ásgeir Baldurs, Ari Bergmann Einarsson og Margrét Guðmundsdóttir voru ákærð fyrir tveggja milljarða króna peningamarkaðsláns sem SPRON veitti Exista rétt fyrir hrun, þann 30. september 2008.
Öll ákærðu neituðu ávallt sök en saksóknari vildi meina að þau hefðu farið út fyrir heimildir sínar til lánveitingar og stefnt fé sparisjóðsins í hættu með því að veita lán án nokkurra trygginga.
Fjölskipaður héraðsdómur taldi hins vegar ekki sannað að um umboðssvik hafi verið að ræða og sýknaði því, eins og áður segir, alla ákærðu.
Tengdar fréttir

SPRON-Málið: „Maður hélt að botninum væri náð“
„Ég er bara venjulegur maður og treysti orðum starfsmanna sjóðsins, sem voru mjög færir, um að lánið væri hagstætt,“ segir Ari Bergmann Einarsson, einn fyrrverandi stjórnarmanna SPRON.

SPRON-málið: Allrar varúðar gætt við lánveitinguna til Exista
Guðmundur Hauksson, fyrrverandi forstjóri SPRON, kom fyrstur í vitnastúkuna í morgun þegar aðalmeðferð í máli sérstaks saksóknara gegn honum og fjórum fyrrverandi stjórnarmönnum sparisjóðsins hófst.

1,3 milljarðar verið greiddir vegna láns SPRON til Exista
Dómarar í SPRON-málinu afléttu í dag trúnaði sem lögmaður Klakka, áður Exista, sagði ríkja um samkomulag félagsins við eignasafn Seðlabanka Íslands.

SPRON-málið: Þurfti að brýna fyrir vitni að það væri refsivert að greina rangt frá fyrir dómi
Annar dagur aðalmeðferðar í máli sem sérstakur saksóknari hefur höfðað gegn fyrrverandi forstjóra og fyrrum fjórum stjórnarmönnum í SPRON hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

„Lúppan” í SPRON-málinu: Milljarðar frá VÍS til SPRON og þaðan til Exista
Valgeir Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjármálasviðs SPRON, bar vitni í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Verjandi Rannveigar Rist sá ástæðu til að minna héraðsdóm á grundvallarreglu réttarríkisins
Munnlegum málflutningi í SPRON-málinu lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.