Sport

Skurðlæknirinn skar upp Fálkana

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Brees er hér á ferðinni í nótt.
Brees er hér á ferðinni í nótt. vísir/getty
New Orleans Saints varð í nótt fyrsta liðið í vetur sem nær að vinna Atlanta Falcons. Lokatölur í fimmtudagsleiknum 31-21 fyrir Dýrlingana.

Fálkarnir mættu borubrattir til New Orleans með fimm sigra í röð á bakinu gegn liði New Orleans sem hafði aðeins unnið einn leik en tapað fjórum.

Það varð snemma ljóst í hvað stefndi. Dýrlingarnir tóku strax forystuna og létu hana aldrei af hendi. Hinn magnaði leikstjórnandi Saints, Drew Brees, oft kallaður skurðlæknirinn, var í banastuði og kláraði 30 af 39 sendingum sínum í leiknum. Hann kastaði 312 jarda og ein af sendingum hans endaði með snertimarki.

Saints gerði heldur engin mistök á meðan tapaðir boltar fóru illa með Falcons. Hlauparinn Mark Ingram skoraði tvö snertimörk fyrir Saints og útherjinn Benjamin Watson átti sinn besta leik á ferlinum. Greip tíu bolta fyrir samtals 127 jördum. Hann skoraði einnig eitt snertimark.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×