Bíó og sjónvarp

Stikla fyrir Daredevil þættina

Samúel Karl Ólason skrifar
Matt Murdock notar ofurheyrn sína til að berjast við glæpamenn.
Matt Murdock notar ofurheyrn sína til að berjast við glæpamenn.
Netflix hefur birt fyrstu stikluna úr Daredevil þáttunum sem birtir verða þann 10. apríl næstkomandi.

Þættirnir um blinda lögmanninn Matt Murdock, þar sem hann berst við glæpamenn á götum New York, eru fyrsta sjónvarpsserían í samstarfi Marvel og Netflix. Með samstarfi fyrirtækjanna er ætlunin að opna fleiri hliðar á ofurhetjusögum Marvel, en sést hafa í kvikmyndum hingað til.

Margir hverjir muna kannski eftir kvikmyndinni Daredevil, með Ben Affleck í aðalhlutverki, sem kom út árið 2003.

Að þessu sinni leikur Charlie Cox aðalhlutverkið en á vefnum IGN, þar sem stiklan birtist fyrst, segir að hann hafi slegið í gegn í áheyrnarprufum fyrir hlutverkið.

Í stiklunni sést Daredevil í búningi sem er svartur, en hann er þekktur fyrir vínrauðan leðurbúning sinn. Höfundar þáttanna segja það hafa verið gert til að sýna upphaf Matt Murdock sem Daredevil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×