Fótbolti

Beckham yngri fær ekki nýjan samning hjá Arsenal

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Samkvæmt enska blaðinu Daily Mirror mun Brooklyn, fimmtán ára sonur David Beckham, ekki fá nýjan samning við Arsenal í sumar. Samkvæmt því mun hann yfirgefa félagið þá.

Beckham er elstur þriggja sona Beckham-hjónanna og þykir enn efnilegur knattspyrnumaður að mati þjálfara hjá Arsenal. Hann byrjaði hins vegar í ungmennaakademíu Arsenal síðar en flestir liðsfélaganna sinna og þeir því lengra komnir en Beckham yngri.

Romeo og Cruz, yngri bræður Brooklyn, verða þá áfram í Hale End-akademíunni en óljóst hvert Brooklyn fer í sumar, hafi hann áhuga á að halda áfram í knattspyrnunni og finna sér nýtt félag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×