Fótbolti

Einkunnir íslenska liðsins: Aron Einar bestur

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Úr leiknum í kvöld
Úr leiknum í kvöld Vísir/Vilhelm
Aron Einar Gunnarsson var maður leiksins að mati Vísis í 0-0 jafntefli gegn Kasakstan í kvöld. Jafnteflið gulltryggir sæti Íslands á EM næsta sumar.

Það var vitað fyrir leik að jafntefli myndi duga liðinu til þess að komast í lokakeppni stórmóts í fyrsta sinn. Það var augljóst á strákunum að það væri mikið undir í upphafi leiks en liðinu gekk illa að halda bolta.

Íslenska liðið stýrði leiknum þrátt fyrir að skapa sér færi og tókst gestunum úr Kasakstan ekkert að skapa sér færi.

Einkunnir Vísis má sjá hér fyrir neðan.

Hannes Þór Halldórsson, markvörður  6

Hafði lítið að gera í öllum leiknum. Varði úr einu góðu færi en smá vandræði með spyrnur framan af.

Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður  6

Ekkert sérstakur í fyrri hálfleik. Betri í þeim síðari en studdi ekki nógu vel við sóknarleikinn.

Kári Árnason, miðvörður 7

Sterkur í loftinu að vanda en tók nokkrar skrítnar ákvarðanir í fyrri hálfleik og átti í basli með sendingar.

Ragnar Sigurðsson, miðvörður 7

Nokkuð traustur í heildina en var stundum í veseni undir pressu. Sendingar ekki jafn góðar og vanalega.

Ari Freyr Skúlason, vinstri bakvörður 8

Öflugur í varnarleiknum og tók virkan þátt í sókninni. Átti nokkrar góðar fyrirgjafir og bjó stundum til eitthvað úr engu.

Jóhann Berg Guðmundsson, hægri kantmaður  7

Mjög líflegur á hægri kantinum. Ógnaði sífellt en fyrirgjafirnar með hægri ekki nógu góðar. Datt svolítið út úr leiknum í seinni hálfleik.

Aron Einar Gunnarsson, miðjumaður 8, maður leiksins

Frábær á miðjunni og teymdi liðið í gegnum stress-kaflann í fyrri hálfleik. Batt liðið saman. Var rekinn af velli á 89. mínútu þegar hann fékk að líta sitt annað gula spjald.

Gylfi Þór Sigurðsson, miðjumaður 7

Hefur verið meira áberandi í sóknarleiknum en sýndi á köflum hversu megnugur hann er. Kom stundum full aftarlega á völlinn til að ná í boltann í seinni hálfleik.

Birkir Bjarnason, vinstri kantmaður 7

Lítið í spilinu í fyrri. Betri í þeim síðari og fiskaði aukaspyrnur með flottum tilþrifum á hættulegum stöðum.



Jón Daði Böðvarsson, framherji 7

Mun líkari sjálfum sér en í Hollandi. Vann endalaust af boltum með baráttu en brenndi af úr dauðafæri.

Kolbeinn Sigþórsson, framherji 6

Vann mikið af skallaboltum en það kom lítið út úr því. Var stundum ekki í miklum takti við sóknarleikinn.

Varamenn:

Viðar Örn Kjartansson- (Kom inn á fyrir Jón Daða Böðvarsson á 84. mínútu)

Komst lítið í takt við leikinn en hann fékk aðeins fimm mínútur og Ísland lék manni færri síðustu mínúturnar.


Tengdar fréttir

Ísland á EM eftir jafntefli gegn Kasakstan

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tryggði sér í kvöld sæti á Evrópumótinu sem fram fer í Frakklandi næsta sumar með 0-0 jafntefli gegn Kasakstan á heimavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×