Handbolti

Anton og Jónas dæma á HM í dag

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Anton og Jónas verða í eldlínunni í Kolding í dag.
Anton og Jónas verða í eldlínunni í Kolding í dag. vísir/stefán
Íslenska dómaraparið, Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson, dæmir í dag sinn fyrsta leik á HM kvenna í handbolta í Danmörku.

Anton og Jónas munu þá sjá um flautuleik þegar Suður-Kórea og Frakkland mætast í C-riðli í Kolding.

Bæði lið eru búin að leika einn leik á HM til þessa. Suður-Kórea gerði 24-24 jafntefli við Brasilíu í 1. umferðinni á meðan Frakkar unnu öruggan 10 marka sigur, 30-20, á Þýskalandi. Bæði Frakkar og Þjóðverjar eru með Íslandi í riðli í undankeppni EM 2016.

Jónas er að dæma á sínu fyrsta stórmóti en Anton er öllu reyndari á stóra sviðinu. Anton, ásamt Hlyni Leifssyni, dæmdi á EM karla 2012, HM karla 2013 og HM kvenna 2013.

Íslendingar eiga einn annan fulltrúa á HM í Danmörku, Þóri Hergeirsson sem stýrir norska landsliðinu. Noregur, sem er ríkjandi heims- og Ólympíumeistari, tapaði fyrir Rússlandi, 26-25, í fyrsta leik sínum á mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×