Golden State sendi New Orleans í sumarfrí | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. apríl 2015 11:04 Stephen Curry var magnaður í einvíginu við New Orleans. vísir/afp
Fjórir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. Golden State Warriors tryggði sér fyrst liða sæti í undanúrslitum með 11 stiga sigri á New Orleans Pelicans, 98-109. Golden State vann einvígið 4-0 og mætir sigurvegaranum úr einvígi Memphis og Portland í næstu umferð. Stephen Curry átti enn einn stórleikinn fyrir Golden State og skoraði 39 stig, tók átta fráköst og gaf níu stoðsendingar. Klay Thompson kom næstur með 25 stig og þá átti Draymond Green flottan leik með 22 stig, 10 fráköst og átta stoðsendingar. Anthony Davis skoraði 36 stig og tók 11 fráköst fyrir New Orleans sem er komið í sumarfrí. Memphis Grizzlies er komið í lykilstöðu í einvíginu við Portland eftir 109-115 sigur á útivelli í nótt. Marc Gasol skoraði 25 stig og tók sjö fráköst fyrir Memphis sem varð fyrir áfalli þegar leikstjórnandinn Mike Conley þurfti að yfirgefa völlinn í 3. leikhluta vegna meiðsla. Nicolas Batum var atkvæðamestur í liði Portland með 27 stig en fjórir leikmenn liðsins skoruðu yfir 20 stig í leiknum. Það dugði þó ekki til. Milwaukee Bucks er enn á lífi í einvíginu gegn Chicago Bulls eftir ævintýralegan sigur í nótt, 92-90. Jarrid Bayless var hetja Milwaukee en hann tryggði liðinu sigurinn með flautukörfu. O.J. Mayo var stigahæstur í liði Milwaukee með 18 stig en Jimmy Butler skoraði mest fyrir Chicago, eða 33 stig. Brooklyn Nets minnkaði muninn í 2-1 gegn Atlanta Hawks með átta stiga sigri á heimavelli, 91-83. Þetta var fyrsti sigur Brooklyn á Atlanta í vetur í sjöundu tilraun. Miðherjinn Brook Lopez var atkvæðamestur í liði Brooklyn með 22 stig og 13 fráköst. Thaddeus Young kom næstur með 18 stig og 11 fráköst. DeMarre Carroll skoraði 22 stig fyrir Atlanta og Paul Millsap bætti 18 stigum og 17 fráköstum við.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira