Lífið

Stjörnum prýtt áramótapartí

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Reykjavíkurdætur dönsuðu inn í nýja árið.
Reykjavíkurdætur dönsuðu inn í nýja árið.
Stjörnur Áramótaskaupsins, stúlkurnar í Reykjavíkurdætrum og Unnsteinn Manuel Stefánsson dönsuðu saman inn í nýja árið í áramótapartíi.

Teitið var haldið heima hjá bróður Unnsteins, Loga Pedro, bassaleikara Young Karin. Fleiri þekkt andlit úr tónlistarbransanum fögnuðu með stjörnum Skaupsins en í partíinu voru einnig MC Gauti, strákarnir í Agent Fresco og leikarinn Snorri Engilbertsson.

Reykjavíkurdætur hefja nýja árið með trompi en þær tróðu upp í nýársfagnaði Vesturports í gærkvöldi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×