Lífið

Orðómur um trúlofun

Leikkonan á von á barni með Dave Garner.
Leikkonan á von á barni með Dave Garner. Vísir/Getty
Hin ófríska leikkona Liv Tyler hefur ýtt undir orðróm um að hún hafi trúlofast kærasta sínum Dave Garner eftir að hún sást með hring á vinstri hendi sinni.

Armageddon-stjarnan viðurkenndi opinberlega að hún átti í ástarsambandi með íþróttaumboðsmanninum Garner, vini Davids Beckham, á síðasta ári eftir orðróm um að þau hefðu verið að hittast.

Í september staðfesti Tyler að hún ætti von á sínu öðru barni. Hún á fyrir tíu ára soninn Milo úr sambandi sínu með breska tónlistarmanninum Royston Langdon.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×