Lífið

Lisa til Lancôme

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Lisa Eldridge förðunarmeistari
Lisa Eldridge förðunarmeistari Vísir/Getty
Förðunarmeistarinn Lisa Eldridge hefur verið ráðin sem stjórnandi förðunardeildar snyrtivörurisans Lancôme.

Eldridge er þekktust í tískuheiminum fyrir förðunarkennslumyndbönd sín á youtube, þar sem hún er með yfir milljón fylgjendur. Í myndböndunum hefur hún sýnt einfaldar farðanir sem henta öllum og er auðvelt að læra.

Hún hefur starfað sem förðunarfræðingur í fjölda ára og hefur meðal annars unnið fyrir Vogue, Harpers Bazaar, tímaritið Love og ID. Eldridge segist vera spennt fyrir nýja starfinu og hlakkar til að þróa nýjar vörur og liti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×