Lífið

Þóra með HM-stofuna

Freyr Bjarnason skrifar
Þóra Arnórsdóttir sér um HM-stofuna.
Þóra Arnórsdóttir sér um HM-stofuna.
Þóra Arnórsdóttir, sem hingað til hefur látið að sér kveða í Kastljósinu, verður á nýjum slóðum í næstu viku þegar hún stjórnar HM-stofunni í Sjónvarpinu.

Þóra verður í settinu ásamt valinkunnum sérfræðingum þar sem frammistaða strákanna okkar verður krufin til mergjar. Fetar hún þar með í fótspor grínistans Björns Braga Arnarsonar sem stjórnaði EM-stofunni í fyrra og hafði uppi ummæli sem fóru fyrir brjóstið á mörgum.

Íþróttafréttamaðurinn Einar Örn Jónsson verður staddur Katar þar sem keppnin fer fram og mun hann lýsa leikjum íslenska landsliðsins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×