Lífið

Var ófrísk á háum hælum

Blake Lively fannst hún vera kynþokkafyllri á háum hælum er hún var ófrísk.
Blake Lively fannst hún vera kynþokkafyllri á háum hælum er hún var ófrísk. Nordicphotos/Getty
Blake Lively fannst hún vera kynþokkafyllri þegar hún gekk á háum hælum meðan hún var ófrísk.

Fyrrverandi Gossip Girl-leikkonan eignaðist sitt fyrsta barn með eiginmanni sínum, Ryan Reynolds, í síðasta mánuði.

Hún neitaði að ganga á flatbotna skóm á meðgöngunni. Ástæðan er sú að henni leið betur í skóm frá Christian Louboutin. „Hvað get ég sagt? Mér líður vel þegar ég er á háum hælum. Mér finnst ég kynþokkafyllri, meira aðlaðandi,“ sagði hún. „Þegar ég fer í Louboutin þegar ég er ófrísk finnst mér ég hafa meiri styrk á því augnabliki.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×