Eldgamlar ofurhetjur mala gull 13. janúar 2015 10:30 ,,Samt er ein mynd sem drottnar yfir þeim öllum á þessu ári og ég bíð eftir henni með jöfnu magni eftirvæntingar og kvíða. Það er auðvitað jólamyndin Star Wars Episode VII: The Force Awakens. Hún má ekki klikka!," segir Gísli Einarsson. MYND/GVA
Þeir voru ekki margir íslensku unglingarnir sem sökktu sér niður í ofurhetjublöð á níunda áratug síðustu aldar. Blöðin voru bundin við þröngan aldurshóp ungra drengja en nokkrir þeirra misstu þó aldrei áhugann. Einn þeirra var Gísli Einarsson, framkvæmdastjóri Nexus, sem hefði vafalaust aldrei trúað því ef einhver hefði sagt honum á þessum tíma að aldarfjórðungi síðar yrðu flestar aðsóknarmestu kvikmyndir Hollywood byggðar á þessum sömu ofurhetjum. Annað hefur þó komið á daginn og kvikmyndaárið 2015 verður engin undantekning og sneisafullt af hugrökkum ofurhetjum, skelfilegum illmennum og ævintýralegum söguþráðum. „Á þessum árum voru ofurhetjublöð frá útgáfufyrirtækjunum Marvel og DC fáanleg í bókabúðum. Fljótlega gerðist ég áskrifandi að nokkrum Marvel-titlum sem voru sendir heim pakkaðir inn í brúnan pappír og oft illa farin eftir ferðina yfir hafið.” Á þessum árum voru X-Men í miklu uppáhaldi Gísla en einnig Hulk, Spider-Man og Fantastic Four. Margar af vinsælustu Hollywood-myndunum undafarinn áratug hafi verið sóttar í smiðju gömlu ofurhetjublaðanna en þó er stutt síðan kvikmyndaborgin tók við sér. „Það er ekki fyrr en árið 1978 sem fyrsta alvöru ofurhetjumyndin er gerð en það var Superman sem þá var orðinn 40 ára gamall.“ Vendipunkturinn hjá Marvel verður árið 1998 þegar fyrsta kvikmyndin um vampírubanann Blade kemur út. Í kjölfarið kom fyrsta X-Men-myndin árið 2000 og þar með var boltinn farinn að rúlla.“ Á þessum árum var Marvel búið að selja þremur kvikmyndaverum réttinn á mismunandi ofurhetjum og mismikil ánægja ríkti um þá ákvörðun innanhúss. „Því var ákveðið að taka þær persónur sem þeir áttu eftir og framleiða eigin kvikmyndir. Um leið voru persónurnar tengdar allar saman þannig að atburðir í einni mynd hefðu áhrif á aðrar, svipað og þeir gerðu í blöðunum með góðum árangri. Þetta er upphafið að núverandi gullöld Marvel-myndanna sem byrjaði með Iron Man árið 2008 og ekki sér fyrir endann á í dag.“ Kvikmyndaárið fram undan verður fjörugt fyrir unnendur ofurhetjumynda eins og Gísla. Hann segist hafa gaman af öllum góðum bíómyndum en sci-fi-, fantasíu- og teiknimyndir séu það sem hann sækir fyrst og fremst í. „Það er allt of langt mál að telja upp þær myndir sem ég er spenntur fyrir. Þó má nefna þrjár ofurhetjumyndir; Avengers 2: Age of Ultron og Ant Man frá Marvel auk Fantastic Four-endurgerðar frá Fox. Svo er ein klassísk fantasíumynd með dreka- og dýflissusniði, Seventh Son, sem lítur vel út. Samt er ein mynd sem drottnar yfir þeim öllum á þessu ári og ég bíð eftir henni með jöfnu magni eftirvæntingar og kvíða. Það er auðvitað jólamyndin Star Wars Episode VII: The Force Awakens. Hún má ekki klikka!“ Landsmenn mega því búast við holskeflu rándýrra ofurhetjumynda næstu árin. „Mér finnst auðvitað stórsniðugt að hasarblöðin sem ég og ekki svo margir aðrir á Íslandi vorum að lesa fyrir 30 árum séu orðin undirstaðan að bróðurparti tekna Hollywood og að þessar rúmlega 50 ára gömlu ofurhetjur séu ferskar og nýjar fyrir bíóáhorfendum.“
Mest lesið Liam Payne úr One Direction látinn Lífið Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Lífið Man ekki eftir öðru eins: Aldrei séð jafn marga falla í yfirlið yfir einni mynd Bíó og sjónvarp „Ekki þurrt auga í salnum“ Lífið Páll Óskar kveikti í kofanum Lífið Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Lífið Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Lífið „Lífsstíllinn er að drepa okkur“ Lífið Sungu bakraddir fyrir Heru og eru nú byrjuð saman Lífið Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé Tíska og hönnun Fleiri fréttir Liam Payne úr One Direction látinn Páll Óskar kveikti í kofanum Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Kveiktu í dansgólfinu í Iðnó „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ „Ekki þurrt auga í salnum“ Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Orðið það sama og þekkt fataverslun í miðbæ Reykjavíkur Hlutverkið það erfiðasta hingað til Glamúr og glæsileiki í opnun hjá Lovísu DIMMA var flott en einhæf Almenningur um stjórnarslit: „Þetta var komið út í smá rugl“ Sjarmerandi íbúð listafólks í miðbænum Pískur sem þróaðist í hættulegustu samsæriskenningu síðari tíma Sungu bakraddir fyrir Heru og eru nú byrjuð saman Fylgdist með Pétri Jóhanni byggja útieldhús Dóttir Ingós og Alexöndru komin með nafn „Lífsstíllinn er að drepa okkur“ Stjörnulífið: Kóngar, drottningar og stjörnur í útlöndum Ótrúleg tilviljun er Stefán brenndi fánann Hvað eru plötusnúðarnir að hlusta á? „Ég nenni ekkert að hafa eitthvað að sanna“ „Leiðangurinn verður kvennaleiðangur að öllu leyti“ Krakkatían: Óveður, flugvélar og kirkjur Hlaupa Bleiku slaufuna í sólarhring Mary drottning hafi undrast umræðu um brúna skó Björns Sjá meira