Lífið

Sagði Ziegler að sleppa áfenginu

Shia Labeouf lék á móti Ziegler í myndbandinu.
Shia Labeouf lék á móti Ziegler í myndbandinu. Vísir/Getty
Hollywood-leikarinn Shia LaBeouf gaf hinni tólf ára Maddie Ziegler, sem leikur á móti honum í umdeildu myndbandi við lagið Elastic Heart með Sia, góð ráð.

LaBeouf, sem er fyrrverandi barnastjarna, varaði hana við því að neyta áfengis en sjálfur fór hann í meðferð á síðasta ári. „Hann sagði mér: „Ekki drekka. Þú skalt aldrei gera það. Ekki gera það sama og ég gerði“,“ sagði Ziegler við Elle.com. Hún segist hafa lært heilmikið af samtalinu við leikarann.

Ziegler þóttu aðferðir LaBeouf skrítnar þegar hann undirbjó sig fyrir myndbandið. „Hann hitar upp og gerir alls konar klikkaða hluti áður en hann byrjar. Hann hljóp um búrið og lamdi í það. Hann öskraði og gerði armbeygjur,“ sagði hún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×