Lífið

Endurvekja menntaandann í Gunnarshúsi

menningarfrömuðir Valgeir Guðjónsson og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir reka fræðslu- og menningarsetrið Bakkastofu.fréttablaðið/daníel
menningarfrömuðir Valgeir Guðjónsson og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir reka fræðslu- og menningarsetrið Bakkastofu.fréttablaðið/daníel
Nú á nýju ári verður hinn forni menntaandi endurvakinn í Gunnarshúsi á Eyrarbakka, eins og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir, námsráðgjafi og forstöðumaður Bakkastofu, orðar það. „Mínar ær og kýr hafa allar götur verið mannrækt. Ég hef viljað styðja við bakið á fólki til að það öðlist sterkari stöðu í lífinu og ástríða mín og eiganda Gunnarshúss, Bergljótar Kjartansdóttur myndlistarkonu og listþerapista, skarast. Bergljót er orðin sjötug og sér ekki fram á að geta gert Gunnarshús að miðstöð fyrir ungt fólk eins og hún hefði viljað. Hún bauð mér afnot af húsinu þar til það verður selt en fyrir dyrum stendur að kynna húsið til sölu aðilum sem sjá tækifæri í að nýta það á þessum forsendum,“ greinir Ásta frá. Í Gunnarshúsi, sem hýsti fyrsta barnaskólann á Íslandi, býðst grunn- og framhaldsskólanemum í upphafi nýs árs að njóta í senn fræðslu í nútímanámsaðferðum, sögustunda og náttúrunnar um kring. „Mér hefur alltaf sárnað hversu margt fólk hefur ekki náð að blómstra í námi þótt það hafi getu til. Við Bergljót ræddum hvaða leiðir væru færar en margir hafa áhyggjur af stöðu íslenskra nemenda, meðal annars vegna dvínandi lesskilnings og einbeitingar. Upp frá því vaknaði hugmyndin um að bjóða upp á tveggja daga námshvetjandi fræðslu um helgar.“ Að sögn Ástu Kristrúnar tekur námshelgin til markvissra náms- og lestraraðferða. „Nemendur fá í hendur nýtt vefforrit sem nefnist Nemanet. Það styður við skilvirkar náms- og lestraraðferðir og tendrar áhuga notandans við heimanám eða sjálfsnám en forritið er byggt á aðferð sem ég hef þróað á yfir þrjátíu ára tímabili í leiðsögn minni við nemendur um bættan árangur í námi.“ Fræðslan verður einnig í Bakkastofu, fræðslu- og menningarsetri Ástu Kristrúnar og Valgeirs Guðjónssonar tónlistarmanns. Fyrirhugað er að fræðsluhelgarnar verði til marsloka.ibs@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×