Lífið

Nýtt lag og nýtt myndband frá Emmsjé Gauta

Gyða Lóa Ólafsdóttir og Kjartan Atli Kjartansson skrifa
Emmsjé Gauti Heldur hipphopp-kvöld og frumsýnir tónlistarmyndband í dag.
Emmsjé Gauti Heldur hipphopp-kvöld og frumsýnir tónlistarmyndband í dag.
Rapparinn Emmsjé Gauti frumsýnir nýtt myndband á Vísi. Myndbandið er við lagið Hafið sem ekki hefur heyrst áður opinberlega. Í því nýtur hann aðstoðar Loga Pedro.

Myndbandið er einkar flott. Bowen Stains sá um myndatöku og klippingu. Í myndbandinu er mikið gert úr náttúrunni. 

Þetta er fyrsta lagið sem Gauti gefur út á árinu, en hann hefur verið duglegur að gefa myndbönd út reglulega. Hér neðst í fréttinni má sjá fleiri myndbönd frá rapparanum.





Heldur tónleika í kvöld

„Ég fæ til mín „artista“ sem ég hef gaman af og væri til í að fara í freyðibað með,“ segir rapparinn sem endurvekur hipphopp-kvöldin Í freyðibaði með Emmsjé Gauta, þar sem hann þeytir skífum og fær til sín góða gesti.

Fyrsta freyðibaðið er á Dolly í kvöld og stígur hljómsveitin Úlfur Úlfur á svið. Hún gefur út sína aðra plötu á árinu og ber Gauti henni vel söguna. „Hún er geðveik. Ég er búin að hlusta á hana og fólk má vera spennt,“ segir Gauti.

Freyðibaðskvöldin verða haldin einu sinni í mánuði og stefnir Gauti á að fá toppinn úr íslensku hipphopp-senunni til sín. „Seinast komu Skytturnar með „comeback“ eftir margra ára fjarveru og ég ætla að reyna að vera með eitthvað svipað á lokakvöldinu núna.“ 

Gauti frumsýnir einnig nýtt tónlistarmyndband við lagið Hafið á Vísi í dag en það er af nýrri plötu sem er væntanleg frá honum. „Ég er sjálfur að fara að gefa út plötu á árinu. Hún verður gefins og kemur ekki út í föstu formi.“

Freyðibaðskvöldið hefst á skemmtistaðnum Dolly klukkan tíu í kvöld og Gauti lofar góðri stemmingu. „Það verður ekki froðudiskó en fólki er velkomið að koma með froðu í poka og hafa það kósý.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×