Handbolti

Skýr skilaboð um lokastöðuna strax í fyrsta leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson hefur verið með í öllum stórmótum frá 2000.
Guðjón Valur Sigurðsson hefur verið með í öllum stórmótum frá 2000. Vísir/AFP
Íslenska handboltalandsliðið er að taka þátt í sínu átjánda stórmóti á þessari öld og úrslitin í fyrsta leik gefa skýr fyrirheit um framhald mótsins ef marka má undanfarin sautján stórmót strákanna okkar.

Ísland hefur sjö sinnum unnið fyrsta leik sinn á stórmótum frá 2000 en sjö sinnum hefur liðið þurft að sætta sig við tap í fyrsta leiknum.

Það er mikill munur á lokaniðurstöðu mótsins út frá úrslitunum í fyrsta leiknum. Þegar Ísland hefur unnið fyrsta leik sinn hefur liðið aldrei lent neðar en í áttunda sæti og að meðaltali í sæti 5,7.

Þegar fyrsti leikurinn hefur tapast hefur liðið aðeins tvisvar sinnum komist inn á topp tíu og aldrei ofar en í 9. sæti. Ísland hefur lent að meðaltali í 11. sæti á þeim mótum frá 2000 þar sem fyrsti leikurinn hefur tapast.

Íslenska liðið hefur þrisvar sinnum gert jafntefli í fyrsta leik og þá er greinilega von á öllu. Liðið lenti þannig í 15. sæti á HM í Túnis 2005 en síðan í 4. sæti á EM 2002 og í 3. sæti á EM 2010.



Skilaboð frá fyrsta leik á stórmótum frá 2000:

Ísland vinnur fyrsta leik  - 5,7 sæti að meðaltali

HM 2003 - Sigur á Ástralíu - 7. sæti

EM 2006 - Sigur á Serbíu - 7. sæti

HM 2007 - Sigur á Ástralíu - 8. sæti

ÓL 2008 - Sigur á Rússlandi - 2. sæti

HM 2011 - Sigur á Ungverjalandi - 6. sæti

ÓL 2012 - Sigur á Argentínu - 5. sæti

EM 2014 - Sigur á Noregi - 5. sæti

Ísland tapar fyrsta leik   - 11,0 sæti að meðaltali

EM 2000 - Tap fyrir Svíþjóð - 11. sæti

HM 2001 - Tap fyrir Svíþjóð - 11. sæti

EM 2004 - Tap fyrir Slóveníu - 13. sæti

ÓL 2004 - Tap fyrir Króatíu - 9. sæti

EM 2008 - Tap fyrir Svíþjóð - 11. sæti

EM 2012 - Tap fyrir Króatíu - 10. sæti

HM 2013 - Tap fyrir Rússlandi - 12. sæti

Ekki missa af neinu sem gerist á HM. Fylgdu Vísi á Twitter, Facebook og Snapchat (notendanafn: sport365).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×