Erlent

Árið 2014 er heitasta árið frá upphafi mælinga 1880

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Miklir hitar voru í Las Vegas í Bandaríkjunum þann 1. júlí í sumar, þar sem þessi kona hafði þann starfa að standa úti á götuhorni með auglýsingaskilti.
Miklir hitar voru í Las Vegas í Bandaríkjunum þann 1. júlí í sumar, þar sem þessi kona hafði þann starfa að standa úti á götuhorni með auglýsingaskilti. Fréttablaðið/AP
Árið 2014 var hlýjasta ár jarðar frá því mælingar hófust fyrir 135 árum. Meðalhitastigið, bæði á landi og sjó, var 0,69 gráðum yfir meðalhita tuttugustu aldarinnar. Níu af tíu heitustu árum þessa tímabils voru á þessari öld, samkvæmt því sem fram kemur í nýrri skýrslu bandarísku loftslagsmælingamiðstöðvarinnar NCDC, sem tilheyrir sjávar- og loftslagseftirliti Bandaríkjanna (NOAA).

Nýjar mælingar bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA koma heim og saman við þetta, en áður höfðu bæði japanska veðurstofan og óháð stofnun við Kaliforníuháskóla í Berkeley einnig staðfest að 2014 væri hlýjasta ár jarðar frá því mælingar hófust.

Við þetta bætist að desembermánuður síðasta árs sé sá hlýjasti frá því mælingar hófust.

„Hnötturinn er hlýrri nú en hann hefur verið síðustu öldina og líklega í að minnsta kosti fimm þúsund ár,“ hefur AP-fréttastofan eftir loftslagsfræðingnum Jennifer Francis frá Rutgers-háskóla. „Minnstu efasemdir um að athafnir manna eigi þar hlut að máli eru að engu orðnar.“

Meðalhiti jarðar á síðasta ári mældist 14,59 gráður, sem er eilítið hærra en árin 2010 og 2005 þegar meðalhitinn var 14,19 gráður. Þetta er sem sagt í þriðja sinn frá aldamótum sem hitamet er slegið, auk þess sem árið 2014 var 38. árið í röð sem árshitinn verður hærri en meðaltalshitinn til lengri tíma litið. 

Samkvæmt skýrslu NOAA má skýra hlýindin að mestu með því að hlýindi sjávar hafa verið óvenju mikil. Hlýindin hafa hins vegar einnig verið óvenju mikil á landi, því árið 2014 hafa hlýindi á landi verið einni gráðu meiri en meðaltal 20. aldarinnar.

Óvenju mikil hlýindi mældust austast í Rússlandi, í vesturhluta Bandaríkjanna, víða í Suður-Ameríku og Evrópu, í Norður-Afríku og hluta Ástralíu. Á einstaka stað reyndust kuldar meiri en venjulega, einkum í miðjum og austanverðum Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×