Lífið

Fyrrverandi skotinn niður

Britney Spears er í uppnámi eftir að fyrrverandi kærasti hennar var skotinn til bana.
Britney Spears er í uppnámi eftir að fyrrverandi kærasti hennar var skotinn til bana.
Fyrrverandi kærasti söngkonunnar Britney Spears var nýlega drepinn af talibönum í Afganistan. John Sundahl var skotinn niður þegar hann var að fljúga þyrlu frá höfuðborginni Kabúl, að því er The Mirror greindi frá.

Sundahl hafði starfað í Afganistan sem verktaki á eigin vegum og flaug með ráðamenn víðs vegar um landið. Hann byrjaði með Spears árið 2007 eftir að þau kynntust á fundum AA-samtakanna.

„Þetta er hræðilegt. Fjölskylda mín er í öngum sínum og þetta er mjög erfitt fyrir aldraða foreldra mína,“ sagði bróðir hans. „Við vitum að Britney er líka í uppnámi. John var enn góður vinur Britney og talaði reglulega við hana.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×