Bíó og sjónvarp

Hathaway í einleik

Anne Hathaway fer með hlutverk herflugmanns.
Anne Hathaway fer með hlutverk herflugmanns. Vísir/Getty
Anne Hathaway verður í sviðsljósinu í einleiknum Grounded sem verður frumsýndur í New York í apríl.

Hin 32 ára Hollywood-leikkona fer með hlutverk herflugmanns í uppfærslu Public Theater á leikritinu, sem er 70 mínútna langt. Leikstjóri er Julie Taymor sem vann Tony-verðlaunin fyrir uppfærslu sína á The Lion King.

„Grounded er snilldarverk og mikilvægt. Það er hugleiðing um þann mannlega og siðferðislega kostnað sem hlýst af þeirri miklu hertækni sem við búum yfir,“ sagði listrænn stjórnandi sýningarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×