Tónlist

Hakkaði sig inn í tölvur poppara

Madonna er þakklát þeim sem gáfu lögreglunni upplýsingar sem leiddu til handtökunnar.
Madonna er þakklát þeim sem gáfu lögreglunni upplýsingar sem leiddu til handtökunnar. Vísir/Getty
Ísraelskur maður hefur verið handtekinn grunaður um að hafa hakkað sig inn í tölvur poppstjarna, þar á meðal Madonnu, og selt óútgefin lög á netinu.

Ísraelska lögreglan sagði að maðurinn væri grunaður um að hafa stolið verkum frá þó nokkrum alþjóðlegum stjörnum.

Madonna segist vera „óendanlega þakklát“ þeim sem aðstoðuðu við handtöku hakkarans og lýsti reynslu sinni sem hræðilegri og særandi.

„Ég vil þakka aðdáendum mínum kærlega sem hafa komi fram með áreiðanlegar upplýsingar og halda áfram að gera það varðandi leka á tónlist. Eins og allir ríkisborgarar, hef ég rétt á einkalífi,“ sagði Madonna á Facebook.

Hún ákvað að flýta útgáfu sex nýrra laga í síðasta mánuði eftir prufuupptökur og ókláruð lög af plötu hennar Rebel Heart fóru á netið.

Stutt er síðan Björk Guðmundsdóttir ákvað að flýta útgáfu nýjustu plötu sinnar, Vulnicura, eftir að henni var lekið á netið . Í framhaldinu skaust platan á toppinn á sölulistum iTunes úti um allan heim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.